Í Bolungarvík búa 956 manns. Í bæjarstjórn sitja sjö bæjarfulltrúar; Sjálfstæðismenn og óháðir með fjóra og þar af leiðandi hreinan meirihluta en K-listi Máttar meyja og manna í minnihluta með þrjá.
Við litum við í Bolungarvík nýlega og tókum púlsinn á bæjarbúum fyrir kosningar:
Jón Páll Hreinsson var ráðinn inn sem bæjarstjóri af meirihlutanum.
„Það sem hefur gerst á svona undanförnum tólf til átján mánuðum er að að það hafa verið gríðarlegar sviptingar í atvinnumálum í Bolungarvík, við erum komin með mjög sterk fyrirtæki“ segir hann í samtali við fréttastofu.
Hann nefnir þar fiskeldi og útgerðina Jakob Valgeir sem eru í vexti og svo nýju mjólkurvinnsluna Örnu.
Og þessu fylgir atvinna sem kallar á fleira fólk í Bolungarvík.

„Það er fyrirséð að hérna mun fólki fjölga á næstu árum. Einhver hundruð manns munu þurfa að flytja til Bolungarvíkur,“ segir Jón Páll.
Laxeldi og fleiri störf
En hvað segja Bolvíkingar um kosningarnar?
Á Olís-bensínstöð bæjarins sitja karlarnir í kaffi þegar fréttastofa kíkir við.
Sigurgeir Sigurgeirsson er matreiðslumaður:
„Ég vil bara að bænum sé stjórnað almennilega. Þetta á bara að vera lítið samfélag og það eiga bara að vera menn sem stjórna þessu. Það eiga ekkert að vera neinir flokkar finnst mér,“ segir Sigurgeir sem kveðst þó vera sáttur með uppbygginguna sem á sér nú stað í bænum.

Jón Vignir Hálfdánsson sjómaður þarf ekki að hugsa sig um tvisvar spurður hvert stærsta kosningamálið í ár sé:
„Ég er búinn að segja það oft og ég segi það einu sinni enn. Ég vil fá laxeldi í bæinn. Og ekkert múður með það. Og bara fullt af fólki til að vinna. Ef við getum skaffað okkur hundrað manns, eða 150 manns, þá getur munað um það í svona bæ,“ segir Jón Vignir sem segir að Sjálfstæðisflokkurinn fái sitt atkvæði.

Jakob Ragnarsson, starfsmaður bensínstöðvarinnar, er sammála Jóni í því að það verði að fá fleira fólk í bæinn: „Okkur vantar iðnaðarmenn; pípara, rafvirkja, smiði og allt. Svo eru karlarnir í smiðjunum að verða gamlir. Það þarf að yngja upp,“ segir hann.

Útlit bæjarins til stórrar skammar
Og konurnar á hjúkrunarheimilinu Bergi sitja einnig í kaffi þegar við kíkjum við þar. Þær sitja sko ekki á skoðunum sínum þar.
Marta Sveinbjörnsdóttir er einn af íbúum Bergs:
„Mér finnst það fyrst og fremst að bæjarstjórnin og þeir sem eiga að hugsa um bæinn að þeir sjái um að hafa snyrtilegt og þrifalegt hérna. Því það er til stórrar skammar ef maður gengur hérna um bæinn hvernig hann lítur út,“ segir Marta.

Það sé alls ekki hugað nógu vel að þrifum í bænum.
„Sú var tíðin að Bolungarvík var talin með þrifalegustu og fallegustu smábæjum hérna á Vestfjörðum en því miður er allt á verri veginn.“
Og Bjarnveig Sigurborg Samúelsdóttir er henni sammála:
„Í næstu kosningum er náttúrulega aðalmálið að laga til í bænum. En við erum sennilega svo blönk að við getum það ekki,“ segir,“ segir Bjargveig.
Hún er þó virkilega sátt við uppbyggingu bæjarins á síðustu mánuðum.

„Svo ætla ég að segja það að ég er svo glöð yfir því hvað við erum að ná okkur upp með atvinnu og unga fólkið það er að koma heim. Og það gleður mig rosalega,“ segir hún.
Já, allir virðast hæst ánægðir með uppbygginguna sem er að eiga sér stað á svæðinu en eins og heyra mátti eru alls kyns önnur mál sem brenna á bæjarbúum.
Hvort þeim finnist K-listinn eða Sjálfstæðismenn álitlegri kostur til að taka það að sér að laga þau kemur í ljós eftir rúma viku.