Menning

Götu­lista­konan Miss. Tic er látin

Atli Ísleifsson skrifar
Miss. Tic er af mörgum talin vera ein af stöfnendum stensillistar.
Miss. Tic er af mörgum talin vera ein af stöfnendum stensillistar. Getty

Franska stensil-og götulistakonan Miss. Tic er látin, 66 ára að aldri.

Í tilkynningu frá fjölskyldu listakonunnar, sem hét Radhia Novat réttu nafni, segir að hún hafi andast í París í gær eftir að hafa glímt við veikindi.

BBC segir frá því að Miss. Tic sé talin ein af stofnendum stensillistar og er graffið hennar – oft myndir af torræðum og dularfullum konum – algeng sjón í frönsku höfuðborginni. Stensill er í raun skapalón úr málmi eða öðru efni með útskorinni mynd eða mynstri sem notaður er til að gera mörg eintök af sömu mynd.

Miss. Tic var handtekin árið 1997 í kjölfar kvartana um að hún væri að eyðileggja almannaeigur með myndum sínum. Þegar leið á myndlistarferilinn áttu myndir hennar eftir að verða sýndar á listasöfnum í Frakklandi og víða um heim. Á ferli sínum vann hún einnig með tískuframleiðendum á borð við Kenzo og Louis Vuitton.

Miss. Tic fæddist í Montmartre í París árið 1956 og var faðir hennar túnískur innflytjandi og móðir hennar frá Normandí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.