Fótbolti

City rétt að byrja á leikmannamarkaðnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Frekari breytingar gætu orðið á leikmannahópi Englandsmeistaranna fyrir næstu leiktíð.
Frekari breytingar gætu orðið á leikmannahópi Englandsmeistaranna fyrir næstu leiktíð. Visionhaus/Getty Images

Khaldoon Al-Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, segir að félagið muni fá nokkra leikmenn til viðbótar í sumar. Þegar hefur City fest kaup á tveimur framherjum.

City vann fjórða Englandsmeistaratitil sinn á fimm árum eftir dramatískan 3-2 sigur á Aston Villa í lokaumferð deildarinnar. Tap hefði þýtt að liðið myndi horfa á eftir titlinum í hendur Liverpool, sem er eina liðið utan City sem hefur unnið titilinn síðustu fimm árin.

Manchester-liðið hefur þegar hafið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir næstu leiktíð. Norski framherjinn Erling Braut Håland gekk í þeirra raðir frá Borussia Dortmund á rúmar 50 milljónir punda og þá kemur annar ungur framherji, Julián Álvarez, á 14 milljónir punda frá River Plate í heimalandi hans, Argentínu.

„Við leitum eftir því að styrkja þau svæði sem þurfa á styrkingu að halda,“ er haft eftir Khaldoon Al-Mubarak á heimasíðu Manchester City.

„Á hverri leiktíð vilja einhverjir leikmenn fara og við þurfum að hressa upp á hlutina. Við munum fá nokkra í viðbót. Við viljum ganga frá því eins fljótt og auðið er, en það er ekki alltaf undir okkar stjórn,“ bætti hann við.

Fyrirliði liðsins, 37 ára gamli miðjumaðurinn Fernandinho, klárar samning sinn í sumar og fer til heimalands síns Brasilíu. Breskir miðlar hafa sagt Kalvin Phillips, leikmann Leeds, vera ofarlega á lista City yfir menn til að fylla skarð hans.

Landi Fernandinho, framherjinn Gabriel Jesus, er mögulega á förum og þá fyllti City ekki í skarð vinstri bakvarðarins Benjamins Mendy á síðustu leiktíð eftir að sá var handtekinn og ákærður fyrir nauðgun.

Mubarak vildi þá lítið tjá sig um samningsmál Pep Guardiola, stjóra liðsins, en hann á ár eftir af samningi sínum við liðið. Í viðtalinu hrósaði hann Guardiola í hástert fyrir starf sitt hjá félaginu og segir að samtalið um framlengingu muni bíða rétts tímapunkts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×