Menning

Leikhúsupplifun í húsbíl þar sem áhorfendur fá að gægjast inn í einkalíf annarra

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sýningin Heimferð er ör-leikhúsupplifun sem fer fram í húsbíl.
Sýningin Heimferð er ör-leikhúsupplifun sem fer fram í húsbíl. Aðsend

Heimferð (Moetvi Caravan) er einstæð ör-leikhúsupplifun í húsbíl fyrir lítinn áhorfendahóp í senn, en aðeins átta áhorfendur komast inn á hverja sýningu fyrir sig. 

Leikritið Heimferð er eftir Handbendi, brúðuleikhús, og er unnið í samstarfi við ProFit Arts (Tékklandi) og Arctic Culture Lab (Grænlandi/Noregi). Sýningaröðin er hluti af listahátíð í Reykjavík en Handbendi er margverðlaunaður brúðuleikhúshópur með aðsetur á Hvammstanga og handhafi Eyrarrósarinnar, sem er viðurkenning veitt framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins.

Brúðuleikhúshópurinn Handbendi er með aðsetur á Hvammstanga og ferðast víða í sumar.Aðsend

Hreyfanlega heimilið

Á þessari sýningu, sem er fyrir alla aldurshópa, er meðal annars notast við hreyfimyndir, tónlist, leiklist, brúðulist, hljóð og mynd. Í fréttatilkynningu segir að allt þetta sé nýtt til að skoða muninn á hreyfanlegu heimili sem marga dreymir um og þeirri upplifun að búa á slíku heimili þvert gegn eigin vilja, í krísu ástandi.

Áhorfendum er fylgt í gegnum opna sögu sem þeir móta sjálfir um leið og þeir fá að gægjast inn í litla heima, einkalíf annarra, og kanna mörg þúsund örstutt augnablik sem flytja okkur aftur heim.

Leikferð víða um landið

Handbendi, ProFit Arts og Arctic Culture Lab vinna sem áður segir að þessu verkefni saman og þessir þrír samstarfsaðilar hafa allir búið til sitt eigið leikhús í farartæki eftir samstarf sem hefur staðið í ár og hver samstarfsaðili fer leikferð í sínu eigin landi í ár. 

Greta Clough leikstýrir verkinu og flytjendur eru Sigurður Arent Jónsson, Sylwia Zajkowska og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir. Snædís Lilja Ingadóttir er danshöfundur, leikmynd og lýsing er eftir Egil Ingibergsson, Jamie Wheeler sér um textíl og uppstillingu og Paul Mosely er yfir tónlistinni. Leikbrúðurnar sem koma fram á sýningunni eru hannaðar af Cat Smits, Greta Clough og Sylwia Zajkowska.

Flytjendur verksins eru Sigurður Arent Jónsson, Sylwia Zajkowska og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir.Aðsend

Verkefnið er styrkt af EES- /Noregsstyrkjum, sviðslistasjóði og launasjóði listamanna. Heimferð verður sýnd á Hvammstanga, Akureyri, í Búðardal, Stykkishólmi, Grundarfirði, á Rifi, Akranesi, í Borgarnesi og Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.