Endurnýjaði ökuskírteinið hundrað ára gömul Bjarki Sigurðsson skrifar 8. júní 2022 23:11 Ökumaðurinn á þessari mynd er ekki Candida Uderzo og því tengist myndin fréttinni ekki beint. Getty Candida Uderzo sem býr í Vicenza-héraði í norðurhluta Ítalíu endurnýjaði á dögunum ökuskírteinið sitt. Uderzo er hundrað ára gömul og er þar með þriðji Ítalinn sem fær að keyra eftir hundrað ára afmælið. „
Þessi endurnýjun gerir mig ánægða og mun láta mér líða aðeins frjálsari líka. Ég er heppin. Ég er hundrað ára og að vera svona heilbrigð kemur mér á óvart,“ hefur ítalski miðillinn Corriere della Sera eftir Uderzo. Hún segist ekki vera á neinum lyfjum en viðurkennir að hún fái sér svefntöflur einstaka sinnum. Á Ítalíu þurfa ökumenn yfir áttrætt að endurnýja ökuskírteini sitt á tveggja ára fresti með því meðal annars að standast sjónmælingu og sýna fram á læknisvottorð. Sjónmælingin hefur verið lítið mál fyrir Uderzo þar sem hún segist ekki einu sinni þurfa að nota gleraugu þegar hún les dagblöðin á morgnana. Hún segist vera mjög heilbrigð og elskar að keyra. Henni finnst afar gott að þurfa ekki að neyða son sinn í að keyra sig út um allt. Lífslíkurnar á Ítalíu eru með þeim hæstu í heiminum og nær meðalkonan að verða tæplega 85 ára gömul, einu ári meira en meðalkonan á Íslandi.
Ítalía Mest lesið Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Fleiri fréttir Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Sjá meira