Viðskipti

Procter og Gamble kenna Amy Schumer um túrtappa­skort

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Amy Schumer gerir grín að yfirlýsingu Procter og Gamble
Amy Schumer gerir grín að yfirlýsingu Procter og Gamble Getty/Kevork Djansezian, Getty/Jane Barlow

Upp er kominn skortur á túrtöppum í Bandaríkjunum, en skorturinn virðist hafa ágerst á síðustu mánuðum.  Stór framleiðandi kennir leikkonunni og grínistanum Amy Schumer um vandann og konur neyðist til að versla túrtappa á okurverði.

Ástæða skortsins kann að vera sú að efni sem eru gjarnan notuð í túrtappa, eins og bómull, hafa á síðustu tveimur árum verið nýtt í auknum mæli í framleiðslu á vörum eins og andlitsgrímum fremur öðru vegna heimsfaraldursins.

Ein bandarísk kona segist hafa gripið til þess að leita að sinni vanalegu túrtappategund á vefverslun Amazon í janúar á þessu ári.  Þar hafi kassi af átján Tampax túrtöppum kostað 114 dollara en þessu segir Time frá í ítarlegri umfjöllun um málið. Skorturinn á þó ekki einungis við Tampax heldur einnig merki eins og Playtex og O.B.

Vinir og vandamenn grípi með sér kassa af túrtöppum

Viðmælandi USA Today lýsir þeim örþrifaráðum sem hún hefur þurft að grípa til en eftir að hafa farið ófáar fýluferðir í leit að réttum túrtöppum brá hún á það ráð að segja frá raunum sínum á Facebook. Með aðstoð vina og vandamanna hefur konunni tekist að útvega sér nokkra kassa af túrtöppunum þar sem vinirnir grípi kassa með sér þegar þeir sjáist í búðum.

Þegar Procter og Gamble, framleiðendur túrtappa eins og Tampax eru spurðir út í skortinn kenna þeir auglýsingaherferð með leikkonunni og grínistanum Amy Schumer um vandann. Framleiðandinn segir mikla aukningu hafa orðið á sölu á túrtöppum Tampax frá því að fyrrnefnd auglýsingaherferð fór í loftið árið 2020. Schumer gerði sjálf grín að yfirlýsingu fyrirtækisins á Instagram síðu sinni nú á dögunum.

Vegna þess að túrtappar eru nauðsynjavara reynist konum erfitt að hinkra eftir því að framleiðendur nái upp þeim framleiðsluhraða sem þörf er á, en á meðan seljast vörurnar ítrekað upp. Þar sem vörurnar seljast upp er hvati til verðlækkana lítill og samkvæmt Time hefur framleiðandinn Procter og Gamble nú hækkað verð á tíðavörum sínum tvö ár í röð og jókst salan á þeim varningi um 10 prósent á síðastliðnum ársfjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×