Fótbolti

Bowen á óskalistanum hjá Arteta

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jarrod Bowen gæti verið á leið til Arsenal. 
Jarrod Bowen gæti verið á leið til Arsenal.  Vísir/Getty

Arsenal hefur samkvæmt enskum fjölmiðlum kannað hvort möguleiki sé á kaupum á enska landsliðsframherjanum Jarrod Bowen, sem lék frábærlega með West Ham United á síðustu leiktíð. 

Bowen skoraði 18 mörk og lagði upp 11 önnur fyrir West Ham United í öllum keppnum á síðasta keppnistímabili. 

Þessi frammistaða skilaði honum sæti í enska landsliðinu en hann lék sínu fyrstu þrjá landsleiki í síðasta glugga liðsins í Þjóðadeildinni. 

Mikel Arteta ku hafa áhuga á að bæta í flóru framerja hjá liðinu en svo virðist sem Nicolas Pepe sé á leið frá Arsenal í sumar. Þá er framtíð Eddie Nketiah í óvissu.

Brasilíski landsliðsmaðurinn Raphinha, sem leikur fyrir Ledds United, er einnig á radarnum hjá Mikel Arteta. 

Fyrr í sumar yfirgaf Alexandre Lacazette herbúðir Arsenal og gekk til liðs við Lyon í heimalandi sínu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×