Eftir dágóða pásu vegna leikja íslenska A-landsliðsins í Þjóðadeildinni og svo U-21 árs landsliðsins í undankeppni EM er Besta deild karla loks farin aftur af stað. Hún hófst með látum í gær þar sem við fengum níu mörk í tveimur leikjum.
Reikna má með svipaðri veislu í kvöld en stórleikur umferðarinnar er á Hlíðarenda þar sem toppliðið – sem er enn með fullt hús stiga – mætir liðinu sem hefur orðið Íslandsmeistari þrisvar á síðustu fimm árum.
Þá er ekki langt síðan liðin mættust en þann 26. maí síðastliðinn unnu Blikar 6-2 stórsigur er liðin mættust í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Tekst þeim að leika sama leik eða hefna Valsmenn fyrir ófarirnar?
Breytingar hjá Blikum
Það eru ákveðin skörð höggvin í lið Breiðabliks en Ísak Snær er sem fyrr í leikbanni þar sem hann hefur nælt sér í fjögur gul spjöld til þessa á leiktíðinni. Þá stendur leikbann Omar Sowe en hann verður hvorki með Blikum í kvöld né gegn KA á mánudaginn kemur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari toppliðsins, staðfesti í viðtali við Fótbolti.net Viktor Karl Einarsson og Gísli Eyjólfsson séu orðnir leikfærir en þeir voru hvorugir með í síðasta leik Blika fyrir landsleikjahlé. Þá er Elfar Freyr Helgason orðinn leikfær en á móti kemur að Andri Rafn Yeoman er meiddur.
Breiðablik missir því í raun út þrjá leikmenn en fær þrjá í staðinn. Maður kemur í manns stað og allt það en nú kemur loks í ljós hvernig liðið höndlar að vera án Ísaks Snæs.
Í sama viðtali við Fótbolta.net staðfesti Óskar Hrafn að Ísak Snær hefði klárað æfingu liðsins í aðdraganda leiksins og „kenndi sér einskis meins,“ eftir að hafa komið af velli í leik með U-21 árs landsliðinu eftir að finna fyrir verk í brjósti.
„var í frábærum höndum hjá landsliðinu og fór í allar þær rannsóknir sem þurfti. Þær komu vel út þannig það lítur allt mjög vel út,“ bætti Óskar Hrafn við.
Óvænt valdir í landsliðið
Undirbúningur Breiðabliks hefur ekki verið eins og best verður á kosinn en þrír leikmenn voru kallaðir inn í A-landsliðið vináttulandsleikinn umtalaða gegn San Marínó. Um var að ræða Damir Muminovic, Höskuld Gunnlaugsson og Jason Daða Svanþórsson.
Fór orðrómur af stað að einum leikmanni liðsins hefði verið lofað byrjunarliðssæti í leiknum en sá virtist ekki á rökum reistur.
Ekki misskilja mig. Þessi frett er bull.
— damir muminovic (@damirmuminovic) June 10, 2022
Jason Daði spilaði rúmlega 20 mínútur í leiknum á meðan Damir og Höskuldur komu inn af bekknum þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.
Aldrei lognmolla á Hlíðarenda
Það hefur heldur betur gustað um Heimi Guðjónsson, þjálfara Vals, síðan landsleikjahléið hófst. Annað árið í röð fóru háværir orðrómar á kreik um að honum hefði verið sagt upp en alltaf stendur Heimir af sér storminn og er enn þjálfari Vals.
Nafni hans - Heimir Hallgrímsson - var sagður vera á leið að taka við Valsliðinu en allt kom fyrir ekki. Heimir, sonur Hallgríms, neitaði í viðtali við Vísi og var svo mættur á bekkinn hjá ÍBV er liðið tapaði 3-0 gegn Íslands- og bikarmeisturum Víkings í gær, miðvikudag.
Fyrir þau sem ekki vita er Heimir Hallgríms fyrrverandi þjálfari ÍBV og Eyja maður í húð og hár. Hvað varðar nafna hans á Hlíðarenda þá hlýtur að vera þreytt að lesa og heyra ítrekaðar sögusagnir um að starf hans sé í hættu. Eina leiðin til að þagga niður í slíkum orðrómum er að vinna fótboltaleiki og það getur Valur gert í kvöld.
Leikur Vals og Breiðabliks hefst klukkan 20.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Að leik loknum verður umferðin gerð upp í Stúkunni.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.