Smári Stefánsson, eigandi The Cave People á Laugarvatni, birti myndina af sér með James nú síðdegis. Fyrirtæki Smára heldur úti ferðamannastaðnum Laugarvatnshellum milli Þingvalla og Laugarvatns þar sem áhugasamir geta kynnst lífi Íslendinga sem bjuggu í hellunum fyrir 100 árum síðan.

Líklega hefur körfuboltastjarnan verið að heimsækja hellana þegar myndin var tekin enda hefur kappinn verið í fríi síðan í apríl þegar lið hans, Los Angeles Lakers, missti af sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.