Lífið

Fjölgun í fjölskyldunni og flutningar á Nesið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Það eru spennandi og ævintýralegir tímar framundan hjá glæsihjónunum Hrefnu Björk Sverrisdóttur og Magnúsi Scheving sem eiga nú von á sínu fyrsta barni saman. 
Það eru spennandi og ævintýralegir tímar framundan hjá glæsihjónunum Hrefnu Björk Sverrisdóttur og Magnúsi Scheving sem eiga nú von á sínu fyrsta barni saman.  Instagram

Það eru spennandi tímar framundan hjá athafnahjónunum þeim Magnúsi Scheving og Hrefnu Sverrisdóttur sem eiga nú von á sínu fyrsta barni saman og búa sig undir flutninga. 

Úr Skerjafirði á Nesið

Hrefna er komin tæpa fjóra mánuði á leið en fyrir eiga þau fjögur börn úr fyrri samböndum.

Fjölskyldan stefnir nú á það að koma sér vel fyrir á Seltjarnarnesinu þar sem þau festu nýverið kaup á glæsilegu húsi á Bakkavör en fyrir áttu þau hús í Skerjafirði.

Magnús og Hrefna eru bæði þekkt fyrir að vera miklir fagurkerar og mun því vafalaust fara vel um ört stækkandi fjölskylduna á nýjum stað. Einnig eiga þau gullfallegan bústað við Þingvallavatn sem þau keyptu fyrir nokkrum árum af tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur.

Hjónin eiga og reka saman veitingastaðinn ROK við Frakkastíg í miðbæ Reykavíkur. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.