Erlent

Meintur morðingi Nips­ey Huss­le varð fyrir fólsku­legri árás

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Eric Holder Jr. varð fyrir fólskulegri árás á þriðjudag.
Eric Holder Jr. varð fyrir fólskulegri árás á þriðjudag. Patrick Fallon-Pool/Getty

Eric Holder Jr. sem er grunaður um að hafa myrt rapparann Nipsey Hussle varð fyrir fólskulegri árás í varðhaldi á þriðjudag. Lögfræðingur Holder segir tvo fanga hafa ráðist á Holder með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og fékk skurð á höfuðið.

Aaron Jansen, lögfræðingur Holder, segir tvo menn hafa ráðist á Holder á meðan hann var í varðhaldi á þriðjudag. Jansen segir Holder hafa hlotið skurð á höfði eftir vopn sem talið er vera rakvélarblað og að þurft hafi þrjá sauma til að loka skurðinum. Þá hafi Holder einnig misst meðvitund í árásinni.

Nipsey Hussle var skotinn til bana árið 2019 á bílastæði fyrir framan verslun sína, Marathon Clothing, í Los Angeles. Hussle var skotinn tíu sinnum með þeim afleiðingum að hann lést aðeins 33 ára gamall. Eftir rannsókn lögreglu var Eric Holder Jr. handtekinn vegna gruns um að hafa myrt rapparann.

Réttarhöld standa nú yfir í morðmáli Hussle.


Tengdar fréttir

Rapparinn Nipsey Hussle skotinn til bana

Lögreglan í Los Angeles segir að rapparinn Nipsey Hussle, sem tilnefndur var til Grammy verðlauna á árinu, hafi verið skotinn til bana í suðurhluta borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×