Lífið

Tony Sirico er látinn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Tony Sirico (t.h.) ásamt Michael Imperioli sem lék með honum í The Sopranos. Imperioli greindi frá andláti Sirico í gær.
Tony Sirico (t.h.) ásamt Michael Imperioli sem lék með honum í The Sopranos. Imperioli greindi frá andláti Sirico í gær. Getty/Theo Wargo

Bandaríski leikarinn Tony Sirico er látinn. Sirico var hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Peter Paul „Paulie Walnuts“ Gualtieri í þáttunum The Sopranos. Sirico var 79 ára gamall er hann lést.

Sirico var af ítölskum uppruna en fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum. Hann var góðkunningi lögreglunnar er hann var yngri og átti diskóstað.

Sirico lék oftar en ekki glæpamenn eftir að hann hóf leiklistarferil sinn, til að mynda í myndunum Goodfellas og Mob Queen. Árið 1999 fékk hann síðan hlutverk í The Sopranos sem skaut honum upp á stjörnuhimininn.

Sirico ljáði hundinum Vinny rödd sína í þáttunum Family Guy en Vinny átti að taka við af hundinum Brian sem gæludýr fjölskyldunnar. Skiptingin var afar óvinsæl og var hún tekin til baka nokkrum þáttum seinna.

Ekki er vitað hvert banamein Sirico var en hann hafði verið greindur með heilabilun nokkrum árum fyrir andlát sitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.