Fótbolti

Stuðningsmaður AC Milan hótar að aflima sig ef þeir selja framherja

Atli Arason skrifar
Rafael Leao, leikmaður AC Milan.
Rafael Leao, leikmaður AC Milan. Getty Images

Rafael Leao, framherji AC Milan, gæti verið á förum frá félaginu. Það gæti þó haft alvarlegar afleiðingar ef hótanir stuðningsmanns liðsins reynast sannar.

Umræddur stuðningsmaður skrifaði á Twitter að ef Leao myndi ekki framlengja samning sinn við liðið þá myndi hann skera af sér fótlegginn. Stuðningsmaðurinn sem gengur undir nafninu Gabriele er með andlitsmynd af Leao húðflúraða á löppinni.

Leao sjálfur svaraði færslunni, með grátandi lyndistáknum. Leikmaðurinn er með nýtt samningstilboð frá AC Milan sem bíður eftir hans undirskrift.

PSG og Chelsea eru á meðal þeirra liða sem hafa áhuga á þessum 23 ára gamla framherja en Milan hefur sagt að félagið muni ekki samþykkja tilboð undir 127 milljónum punda




Fleiri fréttir

Sjá meira


×