Hanna Dís Elvarsdóttir björgunarsveitarkona er meðal þeirra sem hafa hefur staðið vaktina í Meradölum í dag.
„Mér finnst þau hafa verið að hegða sér frekar vel, fólk er að halda sig frá hrauninu og er ekki að reyna að gera eitthvað of mikið,“ sagði Hanna í kvöldfréttum Stöðvar 2. Nokkuð sé um það að fólk sem átti sig ekki á aðstæðum sé illa klætt og í lélegum skóm til göngu.
Aðspurð um slys segir hún eitthvað hafa verið um það að fólk hrasi og detti. Erfitt sé að ganga á svæðinu og leiðin löng. Greint hefur verið frá því að ferðalangur hafi verið fluttur af svæðinu með þyrlu í nótt eftir óhapp.
Hanna beinir þeim tilmælum til fólks sem ætli að skoða gosið að búa sig vel undir erfiðar aðstæður. Mikilvægt sé að klæða sig vel, vera í góðum skóm og taka með gott nesti. Það geti verið áskorun að koma fólki niður af fjallinu ef eitthvað kemur upp á.
„Það er mjög erfitt að keyra þarna og mjög grófir vegirnir svo það er ekkert þægilegt að sitja aftur í bíl vel slasaður.“