Innlent

Úkraínu­mönnum hér á landi fjölgað um 564 prósent

Árni Sæberg skrifar
Úkraínumenn hér á landi mótmæltu innrás Rússa í heimaland þeirra í febrúar.
Úkraínumenn hér á landi mótmæltu innrás Rússa í heimaland þeirra í febrúar. Vísir/Vilhelm

Alls voru 60.171 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 8. ágúst síðastliðinn. Þeim hefur fjölgað um 5.192 frá 1. desember síðastliðnum. Þar munar mestu um 1.588 úkraínumenn sem hér búa en það er fjölgun um 1.349 prósent frá 1. desember.

Í lok árs 2021 voru úkraínumenn hér á landi aðeins 237 en eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur þeim fjölgað tæplega sexfalt eða um 564 prósent. Þetta kemur fram í nýútgefnum tölum Þjóðskrár yfir erlenda ríkisborgara búsetta hér á landi.

Á Íslandi eru 382.382 búsettir. Þar af eru 322.211 með íslenskt ríkisfang eða 84,3 prósent. Næstflestir eru íbúar með pólskt ríkisfang eða 5,8 prósent. Litháar eru 1,3 prósent íbúa og fólk með ríkifang frá öðrum löndum eru 8,6 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×