Lífið

Giftu sig í undirgöngum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Steinþór Helgi og Glódís giftu sig með pomp og prakt við fallega athöfn á Flateyri síðastliðinn laugardag.
Steinþór Helgi og Glódís giftu sig með pomp og prakt við fallega athöfn á Flateyri síðastliðinn laugardag. Kristín María

Glódís Guðgeirsdóttir, jarðfræðingur og plötusnúður, og Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður og athafnamaður, giftust hvort öðru við fallega athöfn á Flateyri síðastliðna helgi þar sem vinir og fjölskylda fögnuðu ástinni með þeim fram á rauða nótt. 

Fyrst stóð til að athöfnin yrði haldin utan dyra í varnargarði við Flateyri en sökum hellidembu færðist hún í göng rétt hjá og segja brúðhjónin að það hafi jafnvel bara verið betur heppnað en hitt. 

Blaðamaður tók púlsinn á brúðinni, Glódísi, og ræddi við hana um stóra daginn, ástina og einstakan brúðarkjól hennar sem hún gerði virkilega góð kaup á.

4000 krónu brúðarkjóll

Glódís segist hafa verið frekar róleg í leitinni að brúðarkjólnum og var ekki alveg viss um hvað hún vildi.

Hin ástföngnu og nýgiftu Glódís og Steinþór.Kristín María

„Ég var svo einn daginn að labba Garðastrætið að sækja drenginn minn í leikskólann og labba fram hjá Hertex, verslun Hjálpræðishersins. Þá var greinilega nýkomin sending frá einhverri hefðarfrú og það var verið að hengja upp nokkra síðkjóla. Ég rak augun í þennan og þurfti varla að máta hann,“ segir Glódís og bætir við að kjóllinn hafi kostað hana 4000 krónur. „Hann birtist bara nákvæmlega þarna og ég vissi líka að ég vildi ekki eyða einhverjum 100 þúsund köllum í hann.“

Elín, nágrannakona móður Glódísar, starfar sem klæðskeri og minnkaði kjólinn svo hann smell passaði á brúðina. „Þetta var allt mjög heimilislegt og fallegt.“

Brúðurin er með liðugri Íslendingum og átti auðvelt með að teygja fótinn upp í loft í kjólnum.Kristín María

Yndislegur staður

Brúðkaupið hafði staðið til í tvö ár en Covid hafði áhrif á að þau neyddust til að fresta því. Þau tóku þó forskot á sæluna síðastliðið sumar.

„Við ætluðum að gifta okkur fyrir tveimur árum síðan en við giftum okkur í fyrra á Flateyri.“ Þau fengu mæður sínar til að vera með þeim í lítilli athöfn.

„Steinþór og vinir hans Ásgeir Guðmundsson og Hlynur Helgi voru beðnir um að sjá um veitingastaðinn og barinn Vagninn yfir síðasta sumar.“ Eftir að hafa eytt öllu sumrinu á Flateyri átti staðurinn hjörtu brúðhjónanna.

„Við höfðum áður komið á Flateyri og vissum hvað þetta var yndislegur staður þannig að við stukkum til og áttum eitt besta sumar í manna minnum.“

Ástin einkenndi andrúmsloftið á Flateyri síðastliðinn laugardag.Kristín María

Síðasta sumar fóru þau svo að hugsa hvar stóra athöfnin ætti að vera.

Hellidemba

„Athöfnin átti fyrst að vera utan dyra inn í varnargarðinum hjá snjóflóðavörnunum en það kom hellidemba þannig að við færðum allt inn í göngin. Við létum það virka og það kom eiginlega bara betur út,“ segir Glódís. 

Allir samankomnir í undirgöngunum sem björguðu athöfninni.Kristín María

Úrvals lið söngvara söng í athöfninni og má þar nefna hljómsveitina GÓSS, þau Sigríði Thorlacious, Sigurð Guðmundsson og Guðmund Óskar ásamt hluta úr hljómsveitinni Hjaltalín þar sem Högni söng ásamt Sigríði og Guðmundi. Glódís segir að tónlistin hafi hljómað virkilega vel í göngunum.

Rigningin stöðvar sannarlega ekki ástina.Kristín María

Allar hendur nýttar

Dagurinn var draumi líkastur og byrjaði með sól og blíðu. 

„Við vöknuðum um 9 og fórum að týna blóm, það er allt í fallegum blómum á Flateyri,“ segir Glódís. Fyrri parti dags var eytt í huggulegheit þar sem hún fór meðal annars með son sinn í sund og svo kláruðu þau að græja salinn. „Þar voru allar hendur nýttar og vinir okkar hjálpuðu okkur að græja það á svona hálftíma.“

Atli Már stýrði athöfninni.Kristín María

Athöfnin hófst klukkan fjögur og var það Atli Már Steinarsson sem sá um athöfnina. Allir hjálpuðust að við að hringja á milli svo það færi ekki fram hjá neinum að athöfnin hefði verið færð inn í göngin. Að henni lokinni hófust veisluhöld þar sem Ásgeir Guðmundsson var veislustjóri og fólk dansaði saman fram á rauða nótt.

Gestir gengu á eftir brúðhjónunum í miklu stuði.Kristín María

Hér má sjá fleiri myndir úr brúðkaupinu:

Hjónin eru mikið stemnings fólk og áttu ekki erfitt með að grípa inn í DJ sett kvöldsins.Owen Fiene

Listakonan Rakel Tómasdóttir er góð vinkona Glódísar.Kristín María

Steinþór Helgi, Glódís og sonur þeirra Einar Glói í einlægu faðmlagi.Kristín María

Glódís er fyrrum afrekskona í fimleikum og sýndi glæsilega takta á dansgólfinu,Owen Fiene
Fjölskyldan Einar Glói, Steinþór Helgi og Glódís.Kristín María

Nýgift.Kristín María

Gestir lyftu glösum.Owen Fiene
Hjónin ásamt mæðrum sínum.Owen Fiene
Blómvöndurinn með nýtýndum blómum.Kristín María

Gleðin var svo sannarlega við völd.Kristín María

Tengdar fréttir

Myndaveisla: Brúðkaup Þórhildar Sunnu og Rafaels Orpel

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata giftist Rafael Orpel við fallega athöfn undir stjórn Arnars Snæberg hjá Siðmennt síðastliðinn laugardag. Sunna skartaði bleikum og gylltum brúðarkjól sem hún var í skýjunum með og tengist náið ævagamalli ást hennar á fatnaði og sögum frá 18. öldinni. Blaðamaður tók púlsinn á Sunnu og fékk að heyra nánar frá draumadeginum.

Edda Hermanns og Ríkharður Daða héldu draumabrúðkaup á Ítalíu

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Ís­lands­banka, og Rík­harður Daða­son, fjár­festir og fyrr­verandi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.