Fótbolti

Pogba hugsi meira um hárið en fótboltann: „Hann er óþekkjanlegur“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Pogba hefur skartað alls kyns greiðslum síðustu misseri.
Pogba hefur skartað alls kyns greiðslum síðustu misseri. Catherine Ivill/Getty Images

Ítalska goðsögnin Fabio Cannavaro, sem lék með Juventus frá 2004 til 2006, er óviss um hvað Frakkinn Paul Pogba mun veita liðinu. Pogba sneri aftur til Juventus frá Manchester United í sumar.

Pogba spilaði frábærlega með Juventus á árunum 2012 til 2016 þegar Manchester United gerði hann að dýrasta knattspyrnumanni heims og borgaði Juventus 105 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Pogba átti misgóðu gengi að fagna í Manchester og þá dró töluvert af honum eftir því sem leið á sex ára dvöl hans þar. Hann fór frítt til Juventus í sumar eftir að samningur hans rann út.

Cannavaro hefur áhyggjur af leikmanninum og er óviss um hvað hann hefur fram að færa.

„Sem fótboltamaður hefur Pogba heillað mig mikið. En undanfarin ár hjá Manchester United hefur hann verið óþekkjanlegur,“

„Hann hefur vanist lúxuslífstíl og einblínt mikið á hárið sitt og ímynd,“ segir Cannavaro. Pogba vakti athygli árið 2018 þegar hann flaug hárstílista sínum yfir 2400 kílómetra svo hann gæti fylgt sér hvert sem hann fór að spila.

Cannavaro vonast þó til að Pogba takist að endurvekja ferilinn nú þegar hann er snúinn aftur til Tórínó.

„Þegar fótboltaleikmaður hugsar svona getur hann ekki keppt á toppnum, 100 prósent. En ég er viss um að hann vilji hefna sín á gagnrýnendunum í endurkomunni til Ítalíu,“

Juventus vann fyrsta leik sinn í Seríu A, 3-0 gegn Sassuolo á mánudagskvöldið. Liðið verður aftur í eldlínunni á mánudagskvöldið kemur þegar það sækir Sampdoria heim. Pogba verður þó ekki í liðinu en hann er að jafna sig á hnémeiðslum sem hann varð fyrir í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×