Lífið

Meghan Markle gerist hlaðvarpsstjarna

Elísabet Hanna skrifar
Meghan Markle hefur sett nýtt hlaðvarp í loftið.
Meghan Markle hefur sett nýtt hlaðvarp í loftið. Getty/Samir Hussein

Her­togaynjan Meghan Markle hefur ákveðið að stíga inn í hlaðvarpsheiminn með þáttunum sínum Archetypes. Fyrsti viðmælandi hennar er tennisstjarnan Serena Williams sem nýlega tilkynnti að hún væri að fara að setjast í helgan stein eftir stórfenglegan feril.

Stimplar sem settir eru á konur

Þættirnir eru með það markmið að vera valdeflandi fyrir konur. Þeir einblína á þá stimpla sem oft eru settir á konu í nútíma samfélagi og geta dregið úr þeim máttinn. Í lýsingu þáttarins eru stimplarnir: Díva, drusla, tík og hysterísk nefndir.

Neikvætt að vera „metnaðarfull“ þegar hún kynntist Harry Prins

Sjálf segist Meghan ekki hafa upplifað neikvæða tengingu við orðið metnaðarfull fyrr en hún byrjaði með núverandi eiginmanni sínum Harry prins. „Og greinilega er metnaður hræðilegur, hræðilegur hlutur fyrir konu að hafa, samkvæmt sumum,“ segir hún. 

Hjónin að gera sér glaðan dag en breskir fjölmiðlar voru ansi grimmir við Meghan þegar hún kom inn í líf prinsins.Getty/Karwai Tang

Eftir að hafa upplifað neikvæðu tenginguna við orðið segist hún eiga erfitt með að sjá það ekki. Hún segir það sorglegt hversu margar stúlkur og konur finnist þær knúnar til þess að gera sig „minni“ og „taka minna pláss“ til að forðast slíka stimplun.

Miklar kröfur til kvenna

Í fyrsta þættinum ræddu Meghan og Serena þær kröfur sem settar eru á konur sem elta draumana sína. „Oft eru konur settar í þessa mismunandi kassa, þegar við erum metnaðarfullar eða þegar við höfum markmið,“ segir Serena meðal annars.

Serena birti fallega mynd af sér ásamt dóttur sinni Olympiu með vinkonu sinni Meghan í tilefni þáttarins á Instagram miðli sínum. Þar hvetur hún þá fylgjendur sína sem eru metnaðarfullir sérstaklega til þess að hlusta á þáttinn.

Vikulegt hlaðvarp

Í næsta þætti verður það engin önnur er Mariah Carey sem mætir til Meghan og ræðir málin en þættirnir munu koma út vikulega. 

Fyrsta þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan:


Tengdar fréttir

Markle biður dómstól afsökunar vegna rangfærslna

Meghan Markle, hertogynjan af Sussex, hefur beðið áfrýjunardómstól á Bretlandseyjum afsökunar á því að hafa ekki munað eftir því að hafa beðið aðstoðarmann um að koma upplýsingum á framfæri til höfunda bókar um hana og eiginmann hennar.

Meg­han og Harry fram­leiða teikni­mynda­þætti fyrir Net­flix

Harry Bretaprins og Meghan Markle hafa tilkynnt að þau séu að framleiða teiknimyndaþætti fyrir Netflix en þættirnir eru framleiddir af framleiðslufyrirtækinu þeirra Archwell. Meghan er höfundur og framleiðandi þáttanna en þeir bera titilinn Pearl.

Harry leysir frá skjóðunni í sjálfs­ævi­­sögu

Harry Bretaprins tilkynnti í gær að hann væri að skrifa sjálfsævisögu. Konungsfjölskyldan er sögð vera stressuð yfir því sem Harry kann að opinbera í bókinni sem er væntanleg í árslok 2022.

Harry prins vann meið­yrða­mál

Harry Bretaprins lagði útgefanda Daily Mail í meiðyrðamáli sem hann höfðaði eftir að grein í The Mail on Sunday um meinta yfirhylmingu prinsins á deilum hans við krúnuna var birt.

Meghan og Harry lýsa yfir áhyggjum vegna falsfrétta Rogan

Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan Markle hafa lýst yfir áhyggjum vegna falsfrétta sem sendar séu út á streymisveitunni Spotify. Þau bætast í hóp tónlistarfólks, sem hefur gagnrýnt streymisveituna vegna hlaðvarpsins The Joe Rogan Experience.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.