Lazio í toppsætið á Ítalíu eftir sigur á Inter

Atli Arason skrifar
Luis Alberto skoraði stórglæsilegt mark fyrir Lazio í kvöld. Hér horfir hann á eftir boltanum fljúga upp í samskeytin.
Luis Alberto skoraði stórglæsilegt mark fyrir Lazio í kvöld. Hér horfir hann á eftir boltanum fljúga upp í samskeytin. Getty Images

Lazio vann í kvöld afar mikilvægan heimasigur á Inter frá Milanó, 3-1. Sigurinn lyftir Lazio í efsta sæti deildarinnar, a.m.k. tímabundið.

Felippe Anderson kom Lazio í forystu á 40. mínútu þegar hann setti boltann í netið með kollinum af stuttu færi eftir fyrirgjöf Milinkovic-Savic og heimamenn leiddu með einu marki í leikhlé.

Á 51. mínútu jafnaði Lautaro Martinez metin fyrir Inter. Martinez náði þá að þrýsta knettinum í markið eftir darraðardans í vítateig Lazio.

Lazio náði forskotinu aftur á 75. mínútu með þrumufleyg frá Luis Alberto sem hamraði boltanum í topphornið með skoti fyrir utan vítateig Inter. Óverjandi fyrir Samir Handanovic í marki Inter.

Pedro kláraði svo leikinn fyrir heimamenn á 86. mínútu þegar hann skrúfaði boltann upp í samskeytin eftir undirbúning Ciro Immobile.

Lokatölur voru því 3-1, sem fleytir Lazio á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir þrjá leiki. Inter er á sama tíma í fjórða sæti með sex stig eftir jafn marga leiki.

Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira