Stórmeistara jafntefli á Ítalíu

Atli Arason skrifar
Paulo Dybala, leikmaður Roma, lék gegn sínum fyrrum félögum í Juventus í dag.
Paulo Dybala, leikmaður Roma, lék gegn sínum fyrrum félögum í Juventus í dag. Getty Images

Juventus og Roma gerðu 1-1 jafntefli í stórleik helgarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Juventus fékk draumabyrjun á heimavelli en Dusan Vlahovic skoraði strax á annari mínútu með marki beint úr aukaspyrnu.

Manuel Locatelli tókst svo að tvöfalda forskot Juventus á 25. mínútu en myndbandsdómari dæmdi markið af eftir að boltinn fór í höndina á leikmanni Juventus í aðdraganda marksins.

Tammy Abraham jafnaði leikinn fyrir Roma á 69. mínútu þegar skot hans af stuttu færi fór í netið eftir flottan undirbúning frá samherja sínum Paulo Dybala, fyrrum leikmanni Juventus.

Jafnteflið skilar Roma upp í þriðja sæti deildarinnar með sjö stig, jafn mörg stig og toppliðin tvö, Lazio og Torino. Juventus er hins vegar í 6. sæti með fimm stig.


Tengdar fréttir

Með varnar­leik skal landið byggja

Þau voru ekki ýkja mörg, mörkin í ítölsku A deildinnu um liðna helgi. Eftir fjöruga upphafsumferð þar sem 34 mörk litu dagsins ljós var önnur umferðin afturhvarf til níunda áratugarins hvað varðar markaskorun. 13 urðu mörkin alls. 

„Þessi blessaða miðja er náttúrulega bara sorp“

„Juventus bara heilluðu ekkert í öðrum leik tímabilsins,“ segir Árni Þórður Randversson í hlaðvarpinu Punktur og basta. Farið var yfir aðra umferðina ítölsku úrvalsdeildarinnar í þætti dagsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira