Juventus heldur á­fram að gera jafn­tefli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik dagsins.
Úr leik dagsins. EPA-EFE/CLAUDIO GIOVANNINI

Juventus gerði sitt þriðja jafntefli í fimm leikjum er liðið sótti Fiorentina heim í fyrsta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni. Lokatölur í dag 1-1 sem þýðir að Juventus hefur ekki enn tapað leik.

Það vakti athygli að Dušan Vlahović, stormsenter Juventus, hóf leikinn dagsins á bekknum en maðurinn sem kom í hans stað kom gestunum yfir þegar strax á 9. mínútu eftir Arkadiusz Milik fyrirgjöf Filip Kostić.

Heimamenn létu það ekki á sig fá og Cristian Kouame jafnaði metin tuttugu mínútum síðar. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks þegar Fiorentina fékk vítaspyrnu. Luka Jović fór á punktinn en þrumaði boltanum í stöngina og staðan því 1-1 er flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Það gerðist lítið í síðari hálfleik og fór það svo að leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Juvetnus er því sem stendur í 4. sæti með 9 stig en heill haugur af liðum gæti farið upp fyrir lærisveina Max Allegri með sigri í dag eða á morgun. Fiorentina er í 10. sæti með sex stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira