Kylian Mbappé skoraði bæði mörk Paris Saint-Germain er liðið vann 2-1 sigur gegn Juventus í stórleik fyrstu umferðar Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Mbappé kom liðinu yfir strax á fimmtu mínútu leiksins með fallegu skoti eftir enn fallegri sendingu frá liðsfélaga sínum, Neymar.
Mbappé var svo aftur á ferðinni rúmum stundarfjórðung síðar þegar hann kom boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Achraf Hakimi og Parísarliðið með öll tök á leiknum þegar flautað var til hálfleiks.
Varamaðurinn Weston McKennie minnkaði þó muninn fyrir gestina snemma í síari hálfleik þegar hann skallaði fyrirgjöf Filip Kostic í autt markið þar sem Gianluigi Donnarumma hafði farið í skógarhlaup í marki Prísarmanna.
Það reyndist þó seinasta mark leiksins og niðurstaðan því 2-1 sigur PSG sem er nú með þrjú stig í H-riðli, líkt og Benfica sem vann 2-0 sigur gegn Maccabi Haifa á sama tíma.