Mikael Egill kom inn af bekknum í tapi gegn Napoli

Atli Arason skrifar
Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Spezia.
Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Spezia. Getty Images

Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Spezia, lék í rúmar 20 mínútur í 1-0 tapi gegn Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Mikael kom inn á leikvöllinn á 70. mínútu í stöðunni 0-0 en tókst ekki ásamt öðrum leikmönnum Spezia að koma í veg fyrir sigurmark Giacomo Raspadori á 89. mínútu.

Með sigrinum fer Napoli á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar en Napoli er ósigrað eftir sex leiki með 14 stig. Mikael Egill og félagar í Spezia eru hins vegar í 14. sæti með 5 stig eftir jafn marga leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira