Meistarar AC Milan áfram taplausir

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

Ítalíumeistarar AC Milan unnu góðan útisigur á Sampdoria í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Junior Messias fékk tækifærið í byrjunarliðinu og var fljótur að setja mark sitt á leikinn því hann kom AC Milan í forystu strax á sjöttu mínútu. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.

Í upphafi síðari hálfleiks urðu AC Milan fyrir áfalli þegar Rafael Leao fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 47.mínútu. 

Tíu mínútum síðar jafnaði Sampdoria metin þegar Filip Djuricic skoraði.

Einum færri tókst AC Milan að finna sigurmarkið og það gerði Olivier Giroud þegar hann skoraði af vítapunktinum á 67.mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og 1-2 sigur AC Milan staðreynd.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira