Viðskipti innlent

Kemur ný inn í eig­enda hóp Réttar

Atli Ísleifsson skrifar
Védís Eva Guðmundsdóttir.
Védís Eva Guðmundsdóttir. Aðsend

Védís Eva Guðmundsdóttir hefur bæst í hóp eigenda hjá hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Hún hefur sérhæft sig í mannréttindamálum og Evrópurétti og hefur starfað á stofunni frá 2020.

Í tilkynningu segir að áður hafi Védís Eva starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel, við EFTA dómstólinn í Lúxemborg og hjá Mörkinni lögmannsstofu. 

„Þá sinnti hún málflutningi í fyrsta málinu sem rekið var gegn íslenska ríkinu hjá yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg árið 2019. Védís Eva lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2015 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2017.

Helstu starfssvið Védísar Evu eru Evrópuréttur, mannréttindi, hugverkaréttur, persónuvernd, samningagerð og skaðabótaréttur, auk málflutnings. Hjá Rétti starfa nú alls 14 manns og eru eigendur fimm, þar af tveir með málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti en stofan var stofnuð af Ragnari Aðalsteinssyni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×