Þorlákur Ingi Sigmarsson var 21 árs þegar hann tók sitt eigið líf í lok árs 2020. Hann var ötull knattspyrnumaður úr Hafnarfirði og það hafði lengi blundað í honum og vinum hans úr bænum, sem hann átti nóg af, að stofna knattspyrnulið. Eftir að Þorlákur kvaddi kom ekki annað til greina en að vinirnir kæmu hugmyndinni til framkvæmda. Og knattspyrnuliðið Þorlákur var stofnað.
„Þetta gerði svo mikið fyrir okkur að við strákarnir gátum hist, þó það væri ekki bara fótbolti. Bara að hittast og spjalla um hvernig menn höfðu það. Daglegt „chat“,“ segir Sigurður Tómas Hjartarson, vinur Þorláks og liðsmaður. Félagið hafi verið mikilvægur liður í að takast á við sorgina í kjölfar fráfalls Þorláks.
„Svo viljum við líka sýna að fólki er ekki sama. Við erum að missa alltof marga úr sjálfsvígum. Ég held þetta sé bara risastórt fyrir suma, að sjá einmitt að fólki er ekki sama.“
Höfrungur í fyrra lífi
Merki liðsins er höfrungur. Strákarnir lýsa því að Þorlákur hafi nefnilega alltaf talað um að hafa verið höfrungur í fyrra lífi.
„Það fór aldrei á milli mála þegar Þorlákur var með okkur í herbergi. Hann var alltaf skærasta ljósið í herberginu,“ segir Jónas Eyjólfur Jónasson, einnig vinur Þorláks og liðsmaður.
„Hann hló mest, mestu lætin. Hvað getur maður sagt? Hann var bara svo... engum líkur. Hann var „one of a kind.“ Þess vegna skilur hann svo rosalega stórt skarð eftir sig. Hann var svo mikil stoð og stytta í hópnum okkar,“ bætir Sigurður við.

Og liðið var skráð til leiks í Boladeildina, helstu utandeild landsins í knattspyrnu, og vann sig upp í úrslitaleikinn. Sem fyrir algjöra tilviljun var spilaður á afmælisdegi Þorláks, 20. september. Leikurinn var spennuþrunginn.
„Við lendum 1-0 undir en svörum strax með þremur mörkum þannig að leikurinn var í 3-1. Það hélt ekki lengi því þeir jöfnuðu okkur svo í 3-3 og við förum í vítaspyrnukeppni, alveg fram í rauðan dauðann,“ segir Jónas.
Ótrúlegar tilviljanir
Og Þorlákur hafði loks betur. Sigurvítið, og fleiri augnablik úr úrslitaleiknum 20. september, má sjá í kvöldfrétt Stöðvar 2 hér fyrir ofan.
En ekki nóg með að leikurinn hafi verið spilaður á deginum hans Þorláks heldur tjáði móðir hans liðsmönnum síðar að sigurmarkið hefði verið skorað á nánast sömu mínútu og Þorlákur kom í heiminn fyrir 23 árum.

Hvernig fannst ykkur að heyra það?
„Alveg bara sjokkerandi sko, okkur fannst hitt nógu sjokkerandi og svo þetta einhvern veginn ofan á. Þessi dagur var þvílíkt persónulegur fyrir okkur. Og það voru allir svo gíraðir í þetta,“ segir Sigurður sem notar tækifærið og þakkar andstæðingunum í Knattspyrnufélaginu Loka kærlega fyrir drengilega framgöngu í úrslitaleiknum. Í Loka eru einnig margir félagar Þorláks.
„Það gat ekki átt meira við. Þetta var dagurinn hans. Og við sannarlega heiðruðum það,“ segir Jónas.
Og strákarnir eru hvergi nærri hættir. Utandeild KSÍ er næst á dagskrá. Allt fyrir Láka.