Viðskipti innlent

Guð­rún tekur við af Ástu sem fram­kvæmda­stjóri Krónunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Aðalsteinsdóttir hefur starfað sem forstöðumaður stafrænnar þróunar og umbótaverkefna hjá Krónunni og þar á undan sem forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar.
Guðrún Aðalsteinsdóttir hefur starfað sem forstöðumaður stafrænnar þróunar og umbótaverkefna hjá Krónunni og þar á undan sem forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar. Krónan

Guðrún Aðalsteinsdóttir rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf í dag. Hún tekur við af Ástu Sigríði Fjeldsted sem var ráðin forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, fyrr í mánuðinum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Festi til Kauphallarinnar. Þar segir að Guðrún hafi starfað hjá Krónunni í tæp tvö ár, síðast sem forstöðumaður stafrænnar þróunar og umbótaverkefna, þar á undan sem forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar.

„Guðrún er rekstrarverkfræðingur með M.Sc. frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU). Hún starfaði áður sem for­stöðumaður hjá Icelanda­ir á rekstr­ar­sviði þar sem hún var ábyrg fyr­ir m.a. sölu og þjón­ustu í flug­vél­um fé­lags­ins, vöruþróun, inn­kaup­um, birgðastýr­ingu og fram­leiðslu því tengdu. Hún hef­ur enn frem­ur alþjóðlega reynslu frá Nýja-Sjálandi, þar sem hún vann í þrjú ár fyrst sem yfirmaður verkefnastofu og seinna sem yfirmaður ráðgjafar á sviði rekstrarumbóta og stefnumótunar í heilbrigðisþjónustu hjá ráðgjafastofunni Te whatu ora health. Þar áður starfaði hún hjá Novo Nordisk Engineering (NNE) í Kaupmannahöfn við verkefnastýringu og áætlanagerð.“

Haft er eftir Ástu Sigríði að það sé mikill ávinningur og styrkur fyrir Festi að fá Guðrúnu til að leiða Krónuna. „Hún þekkir vegferð Krónunnar og sókn á mörgum sviðum s.l. ár einstaklega vel og við treystum henni til að halda því starfi áfram í samstarfi við okkar samhenta og öfluga starfsfólk. Guðrún hefur fjölbreytta og alþjóðlega reynslu ásamt skýrri sýn sem mun nýtast vel í því umhverfi sem við störfum í,“ segir Ásta Sigríður.

Þá er haft eftir Guðrúnu að hún sé fyrst og fremst þakklát því trausti sem henni sé sýnt að fá að leiða Krónuna og þann góða hóp fólks sem þar starfi. „Ég hef fengið tækifæri til að kynnast Krónunni síðastliðin tvö ár og þekki því af reynslu hversu mikil þekking, kraftur og metnaður býr innan fyrirtækisins. Framundan eru virkilega spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við. Það eru forréttindi að fá að gera það með frábærum samstarfsfélögum Krónunnar sem og innan samstæðu Festi,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir.


Tengdar fréttir

Ásta ráðin for­stjóri Festi

Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Festi og tekur við starfinu frá og með deginum í dag. Hún hefur verið framkvæmdastjóri Krónunnar frá árinu 2020 og mun sinna því starfi samhliða forstjórastöðunni fyrst um sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×