Viðskipti innlent

Al­dís nýr sviðs­stjóri for­varna­sviðs SHS

Atli Ísleifsson skrifar
Aldís Rún Lárusdóttir.
Aldís Rún Lárusdóttir. SHS

Aldís Rún Lárusdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hóf hún störf í byrjun mánaðar.

Í tilkynningu segir að Aldís sé með doktorspróf í byggingarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet með áherslu á brunaöryggi og rýmingarfræði. Hún er einnig með B.Sc. og M.Sc. frá sama skóla. 

„Aldís hefur starfað sem brunahönnuður hjá Eflu verkfræðistofu síðastliðin 9 ár að undanskildu einu ári, þar sem hún starfaði sem brunahönnuður í Danmörku. 

Haft er eftir Birgi Finnssyni, starfandi slökkviliðsstjóra, að Aldís sé með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í brunahönnun. 

„Verkefni forvarnasviðsins eru margþætt. Auk þess að sinna almennu eldvarnaeftirliti, má nefna samskipti við hönnuði mannvirkja og yfirferð teikninga með byggingafulltrúum sveitarfélagana. Umsagnir um tækifærisleyfi, öryggis- og lokaúttektir og öryggisvaktir. Forvarnasviðið skipuleggur fræðslu til grunn- og leikskóla, ásamt því að aðstoða og upplýsa íbúa og fyrirtæki á svæðinu, um ýmislegt sem varðar brunavarnir. Aldís er öflugur leiðtogi og mun leiða öflugan hóp starfsfólks á forvarnasviðinu í flóknum og krefjandi verkefnum.“ segir Birgir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×