Enn eru fjögur lið án sigurs í deildinni, en það mun þó breytast í kvöld þar sem tveir af þrem viðureignum innihalda einungis lið sem enn eru í leit að sínum fyrsta sigri.
Við hefjum leik klukkan 19:30 þegar sigurlausu liðin LAVA og Ten5ion mætast, en klukkan 21:30 mætast einnig tvö sigurlaus lið, Breiðablik og Viðstöðu.
Við brjótum þetta þó aðeins upp því í millitíðinni, klukkan 20:30 mætast SAGA esports og NÚ. SAGA hefur unnið einn leik og tapað einum í upphafi tímabils, en NÚ hefur unnið báða sína leiki og getur því haldið í við topplið Dusty og Þórs með sigri.
Hægt er að horfa á Ljósleiðaradeildina í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport, eða einfaldlega í spilaranum hér fyrir neðan.