Twitter-samfélagið rak í rogastans í gær þegar Urður Örlygsdóttir fréttamaður á Ríkisútvarpinu birti mynd af tveimur eintökum af súkkulaðistykkinu vinsæla; annað í hinum hefðbundnu umbúðum, skreyttum rauðum og bláum þristum, en hitt öllu lágstemmdara; guli liturinn enn allsráðandi en annars fátt sem minnir á hinn klassíska þrist.
Búið að vara við nýjum veruleika vegna hryðjuverka. En hvað er þetta??? pic.twitter.com/RfsuvWM8iM
— Urður Örlygsdóttir (@uorlyx) October 4, 2022
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Að mestu afar neikvæð.
„Þristirnir farnir af þristinum. Ég hefði farið í þveröfuga átt og unnið með þá áfram,“ skrifaði Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi.
Þristirnir farnir af þristinum. Ég hefði farið í þveröfuga átt og unnið með þá áfram. Miklir möguleikar þarna, t.d. að tengja þá við :3 broskallinn.
— Halldór Auðar Svansson 🇮🇸 🤝 🇺🇦 (@tharfagreinir) October 4, 2022
„Siðrof!“ sagði annar. „Oj.. OG TIL HVERS?!“ velti sá þriðji upp. Og svo var það þetta:
Afhverju ekki bara að fara alla leið með þetta you cowards? https://t.co/b6kXE8cdV5 pic.twitter.com/XStRrA7a8S
— Oddur Gunnarsson Bauer (@oddurbauer) October 4, 2022
Ofangreindum er eflaust í fersku minni breytingar á gamalgrónum vörumerkjum annarra fyrirtækja sem greint hefur verið frá síðustu misseri. Þar má nefna Bónusgrísinn og Olísmerkið, breytingar sem sömuleiðis vöktu afar hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum. Og neytendur hafa greinilega óttast að hið ástæla súkkulaðistykki, sem hefur raunar ítrekað verið valið besta íslenska sælgætið, fari sömu leið.
Bíða eftir nýrri sendingu
En svo er ekki. Snorri Páll Jónsson forstjóri Kólusar segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að þessi breyting, sem vakti svo hörð viðbrögð netverja, sé tímabundin. Ástæðan sé rof í svokallaðri aðfangakeðju, meðal annars vegna stríðsreksturs Rússa í Úkraínu. Hann sé farinn að hafa „óþægileg áhrif“ á meðal annars umbúðaframleiðslu í Evrópu.
„Raforkuskortur og skömmtun á þeim mörkuðum, ásamt ört hækkandi verðlagi af þeim sökum, er nú farið að „glefsa“ í okkur hérna á litla Íslandi líka. Nú þarf mun meiri fyrirvara en áður til undirbúnings á framleiðslu á umbúðum eins og plasti, sem allt er framleitt utan landsteinanna, eftir að sú framleiðsla lagðist af svo til með öllu í landinu, fyrir um tveimur árum,“ segir Snorri.
Umbúðirnar sem netverjar voru svo vonsviknir með séu notaðar utan um Þrist á erlendum markaði. Þær sé nú verið að nýta tímabundið hér heima.
„Þar til ný sending umbúða með „gamla“ góða útlitinu berst á allra næstu dögum,“ segir Snorri.