Innlent

Sér­sveit hand­tók bog­mann í nótt

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Eigandi hestsins segir hann á batavegi.
Eigandi hestsins segir hann á batavegi. Arnar Kjærnested

Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa skotið hest með boga. Við húsleit fannst bogi, örvar og nokkur fjöldi eggvopna.

Ör var skotið í læri hests frá Tjarnabyggð skammt frá Selfossi í nótt. Lögreglunni á Suðurlandi var gert viðvart um málið og framkvæmdi hún húsleit í kjölfarið í samstarfi við sérsveit ríkislögreglustjóra. Lögregla greinir frá málavöxtunum á Facebook þar sem fram kemur að rannsókn miði vel.

Fréttastofa ræddi við eiganda hestsins Ýmis fyrr í dag og sagðist hann vera í áfalli. Arnar Kjærnested, eigandi hins 24 vetra Ýmis frá Bakka, segir mildi að ekki hafi farið verr. Hann segir ljóst að örinni hafi verið skotið af miklu afli og af skömmu færi. 

„Það er skrýtið að gera dýri svona, þetta hefur verið einhver hálfviti. Maður skilur bara ekkert hvað vakir fyrir fólki sem gerir svona lagað. Það er heppni að þetta fari í lærið á honum en ekki magann eða önnur líffæri. Þannig við erum þakklát því en auðvitað bara í miklu sjokki að þetta skuli gerast hér, “ sagði Arnar í samtali við fréttastofu.


Tengdar fréttir

Á­fall þegar hún sá myndir af hryssunum sínum í fjöl­miðlum

Fyrrverandi eigandi þriggja hrossa úr stóði, sem sagt er hafa sætt illri meðferð núverandi eigenda, segir það hafa verið gríðarlegt áfall að sjá myndir af hrossunum í fjölmiðlum í gær. Hún leitar nú leiða til að fá hrossin aftur til sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×