Mbl.is greindi fyrst frá. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, staðfesti að grunur væri um manndráp í hverfi 105 þar sem aðili hefði fundist látinn í gærmorgun.
Í framhaldinu sendi lögreglan tilkynningu þess efnis að kona á sextugsaldri hefði fundist látin í bifreið við hús í Laugardal í gærmorgun. Tveir menn voru í kjölfar þess handteknir í þágu rannsóknarinnar og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 13. október.
Rannsókn málsins er enn á frumstigi en í tilkynningunni segir að hún beinist meðal annars að því hvort mennirnir hafi átt þátt í andláti konunnar.
Lögregla segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Þetta er í annað skiptið á innan við viku hér á landi sem grunur leikur á um manndráp. Karlmaður á fimmtugsaldri lést af völdum stungusára á Ólafsfirði aðfaranótt síðastliðins mánudags. Sex vikur eru síðan kona var myrt á Blönduósi. Árásarmaðurinn lést sömuleiðis á vettvangi.
Fréttin hefur verið uppfærð.