Fótbolti

Sjáðu sex mínútna þrennu Salah, Son í stuði og sex marka leik á Nývangi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harvey Elliott og Mohamed Salah fagna sjöunda og síðasta marki Liverpool liðsins í gær.
Harvey Elliott og Mohamed Salah fagna sjöunda og síðasta marki Liverpool liðsins í gær. AP/Scott Heppell

Ensku félögin Liverpool og Tottenham unnu bæði leiki sína í Meistaradeildinni í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjum þeirra hér inn á Vísi sem og úr miklu markajafntefli Barcelona og Internazionale.

Liverpool vann 7-1 útisigur á skoska félaginu Glasgow Rangers þrátt fyrir að lenda undir í leiknum en Tottenham vann 3-2 sigur á tíu mönnum Eintracht Frankfurt eftir að hafa einnig lent 1-0 undir.

Vandræðin hafa verið mikil á Liverpool og einu sinni sem oftar lenti liðið 1-0 undir á Ibrox í gær. Hafi Jürgen Klopp verið að bíða eftir svari frá sínum mönnum þá vöknuðu þeir heldur betur.

Klippa: Mörk úr 7-1 sigri Liverpool á Rangers

Roberto Firmino jafnaði metin og kom þeim yfir og Darwin Nunez skoraði þriðja markið.

Þá var komið að sýningu Mohamed Salah. Salah hefur verið slakur að undanförnu en kom þarna inn á sem varamaður og setti nýtt Meistaradeildarmet með því að skora þrennu á sex mínútna kafla.

Harvey Elliott skoraði síðan sjöunda og síðasta markið og Liverpool nægir nú jafntefli á móti Ajax til að tryggja sig áfram í sextán liða úrslitin.

Klippa: Mörkin úr 3-2 sigri Tottenham á Frankfurt

Tottenham liðið er í efst sæti síns riðils eftir sigurinn á botnliði Eintracht Frankfurt en það er samt bara eitt stig í næstu tvö lið sem eru Marseille og Sporting.

Son Heung-min skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og þriðja markið gerði Harry Kane úr víti. Kane lagði upp fyrsta mark Son en samvinna þeirra er mögnuð.

Son fiskaði líka einn leikmann Frankfurt af velli með sitt annað gula spjald en tíu menn þýska liðsins náðu samt að minnka muninn í 3-2 og búa til taugaveiklaðar lokamínútur.

Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr þessum tveimur leikjum sem og úr 3-3 jafnteflisleik Barcelona og Internazionale.

Klippa: Mörkin úr 3-3 jafntefli Barcelona og Internazionale



Fleiri fréttir

Sjá meira


×