Erlent

Fjögur látin eftir elds­voða í fangelsi á svörtum lista

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hluti fangelsins eftir að búið var að slökkva eldinn.
Hluti fangelsins eftir að búið var að slökkva eldinn. EPA-EFE/STRINGER

Eldur braust út í Evin fangelsinu í Tehran í Íran í gærkvöldi, fjórir eru sagðir látnir og 61 slasaður eftir eldsvoðann. Yfirvöld segja reykeitrun hafa valdið dauða þeirra sem létust. Fangelsið hýsir meðal annars pólitíska fanga og hefur verið sett á svarta lista vegna mannréttindabrota.

Eldurinn brýst út á tímum mikillar ólgu í Íran en mótmæli hafa geisað um allt land vegna dauða 22 ára konu að nafni Mahsa Amini. Amini lést í haldi siðgæðislögreglu Íran en hún var í haldi vegna þess að hún er sögð ekki hafa borið höfuðklút sinn á viðeigandi máta. Í kjölfarið brutust út mikil mótmæli sem hafa nú staðið yfir í um mánuð.

Írönsk yfirvöld eru sögð hafa greint frá því að upptök eldsins hafi verið á vinnustofu í fangelsinu, þar hafi verið kveikt í þegar slagsmál milli fanga brutust út. Reuters greinir frá þessu.

Skothljóð eru sögð hafi heyrst innan fangelsisins á meðan eldurinn geisaði. Tíu fangar eru sagðir hafa verið fluttir á sjúkrahús.

Engir fangar hafi sloppið en einhverjir hafi þó gert tilraun til þess. Einnig hafi verið lokað fyrir internetaðgang á svæðinu.

Fangelsið hafi verið gagnrýnt fyrir að brjóta á föngum sínum en Bandaríkin hafi sett það á svartan lista árið 2018 vegna mannréttindabrota.


Tengdar fréttir

Konur brenna slæður sínar í Íran

Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar.

Börn og konur séu illa stödd á mót­mælum í Íran

Mótmæli hafa geisað í Íran í um það bil mánuð vegna dauða ungu konunnar, Mahsa Amini en hún lést í haldi írönsku siðgæðislögreglunnar. Ný skýrsla Amnesty International er sögð varpa ljósi á dauðsföll barna á meðan mótmælunum hefur staðið. Mannréttindasamtökin saki öryggissveitir um að hafa beitt sér sérstaklega gegn ungu fólki. Þá eru öryggissveitir sagðar beita mótmælendur og þá sérstaklega konur, mikilli hörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×