Fótbolti

„Erum stað­ráðnir í að spila góðan leik og ná í úr­slit“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari. KSÍ

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Sádi-Arabíu ytra í vináttulandsleik á morgun klukkan 13.00 að íslenskum tíma. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, hefur lagt nokkur orð í belg um mótherja morgundagsins.

„Sádarnir eru með sterkt lið, hafa verið með besta liðið á þessu svæði síðustu áratugina og hafa reglulega komist í lokakeppni HM. Þeir eru með mjög flinka leikmenn, flestir að spila í Sádi-Arabíu.“

„Þeir eru að fara að æfa sitt upplegg fyrir HM, þeir vilja vera agaðir og spila lokaða leiki, eins og þeir gerðu gegn Bandaríkjunum fyrir stuttu síðan, svo spiluðu þeir á móti Venesúela, sem við þekkjum vel, þannig að þetta hafa verið lokaðir leikir og ekki mikið af færum.“

„Þessi leikur verður spennandi og verðugt verkefni fyrir okkar leikmenn og það eru einmitt þannig verkefni sem við erum að leitast eftir. Þetta er frábær möguleiki fyrir okkar leikmenn, sem eru margir að koma beint úr Bestu deildinni, að sýna sig og sanna á þessu getustigi.“

„Margir af okkar leikmönnum ef ekki allir, sem eru ekki atvinnumenn nú þegar, hafa áhuga á því að komast í atvinnumennsku og þessir leikir geta verið góður gluggi fyrir þá. Þetta er alvöru verkefni og þó þetta sé vináttuleikur, þá erum við staðráðnir í að spila góðan leik og ná í úrslit. Ef við náum að sýna góða liðsframmistöðu, þá er alltaf möguleiki á einstaklings frammistöðum hjá einhverjum leikmönnum, sem leiða þá til einhvers stærra og betra.“

Eins og Vísir hefur greint frá þá eru Sádarnir að borga undir ferðina og þarf Knattspyrnusamband Íslands ekki að leggja út krónu. Hversu mikið Sádarnir eru að borga hefur ekki verið gef út.

Leikurinn hefst klukkan 13.00 á morgun, laugardag, og verðu í beinni textalýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×