Innlent

Keyra út nýja flokkunartunnu í Flóahreppi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Nýju tunnurnar eru keyrðar út þessa helgi og þá næstu í Flóahreppi, alls um 200 tunnur.
Nýju tunnurnar eru keyrðar út þessa helgi og þá næstu í Flóahreppi, alls um 200 tunnur. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Félagar í Ungmennafélaginu Þjótanda í Flóahreppi hafa haft nóg að gera um helgina við að fara með nýjar sorptunnur á heimili í sveitarfélaginu en frá og með næstu áramótum tekur við nýtt flokkunarkerfi um allt land við heimili fólks í fjórum tunnum samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs.

Um er að ræða samstarfsverkefni Flóahrepps og Ungmennafélagsins um að fara með 200 tunnur þessa helgi og næstu helgi á sveitabæi í sveitarfélaginu. Um fjáröflun er að ræða hjá ungmennafélaginu, sem félagar eru duglegir að taka þátt í.

Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Flóahrepps veit um hvað málið snýst.

„Verkefnið snýst bara um það að þau eru að sjá um að keyra út tunnurnar og ungmennin fá eitthvað í sinn vasa. Þau eru hörkudugleg en þau eru líka að setja lokið á tunnurnar og hjólin undir. Ég fylgdist með þeim í smá stund og þetta er orðið ósköp sjálfvirkt hjá þeim og snögg að þessu,“ segir Hulda.

Hulda segir að nýja tunnan, sem verður fjórða flokkunartunnan verði að vera komin á öll heimili landsins um næstu áramót samkvæmt nýjum lögum.

Félagar í Umf. Þjótanda að festa lok á tunnu.Aðsend

„Já, þetta snýst um að koma upp þessari samræmdu flokkun á, sem er að fara að gerast út um allt land. Það fer plast í þessa nýju tunnu en þá flokkum við plast, pappír, svo almennt og svo lífrænt og allt fer þetta beint í hringrásarhagkerfið og við viljum náttúrulega að fólk flokki sem mest og hendi sé minnst í almennt sorp,“ segir Hulda.

Haldið verður áfram að fara með nýju tunnurnar inn á heimili í Flóahreppi í næstu viku.

„Já, planið er að reyna að halda áfram næstu helgi og svo bara lengur ef að þarf, en ég veit allavega að það gekk þrusu vel í dag enda veðrið alveg frábært,“ segir Hulda, sveitarstjóri Flóahrepps.

Plastumbúðir eiga að fara í nýju tunnuna.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×