Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Í tilkynningunni kemur fram að stúlkan segir manninn hafa gripið í sig og beðið að koma með sér. Hún hafi hins vegar slitið sig frá honum og haldið heimleiðis. Stúlkan er ómeidd en var nokkuð brugðið.
Í samtali við lögreglu og fulltrúa barnaverndar gaf stúlkan greinargóða lýsingu á manninum þar sem fram kom að hann hafi verið í svörtum buxum og dökkum jakka.
„Mikilvægt þykir að upplýsa um málsatvik og eins og áður sagði óskar lögregla eftir að ná tali af viðkomandi manni og jafnframt að fá upplýsingar frá vegfarendum á þessari leið um manninn eða annað er máli kann að skipta búi einhver yfir þeim,“ segir í tilkynningunni frá lögreglunni.
Hægt er að ná sambandi við lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000 eða með því að hringja í 112. Jafnframt má senda upplýsingar á netfangið sudurland@logreglan.is