Áform ráðherra leiði til þess að frumkvöðlar stofni fyrirtæki erlendis
![Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að tilefni frumvarpsins sé að bregðast við þeirri alþjóðlegu þróun sem orðið hefur á undanförnum árum þar sem fjöldi ríkja innan OECD hafi sett heildstæða lagaumgjörð um fjárfestingar í mikilvægum innviðum.](https://www.visir.is/i/4921A2537E7F1D668A275CFC6DD0EA5564F21ADDAA4BE19011833923AA6FDEEC_713x0.jpg)
Margir af máttarstólpum nýsköpunargeirans telja að ef lagafrumvarp um innleiðingu á rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis verði að lögum í óbreyttri mynd muni íslenskir frumkvöðlar í auknum mæli kjósa að stofna fyrirtæki erlendis um starfsemina til að komast hjá íþyngjandi áhrifum þess. Frumkvöðlar og fjárfestar í nýsköpun telja að frumvarpið muni hafa „verulega íþyngjandi áhrif á íslensk nýsköpunarfyrirtæki“ og dragi úr möguleikum þess að verða sér úti um alþjóðlegt fjármagn en lítið sé um sérhæfða fjárfesta sökum smæðar landsins.