Fótbolti

Norðmenn og Finnar skildu jöfn í vináttuleik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alexander Sorloth var á skotskónum í dag.
Alexander Sorloth var á skotskónum í dag. vísir/getty

Þau landslið sem ekki komust á HM í Katar nýta tímann nú til að spila vináttuleiki.

Noregur og Finnland mættust á Ulleval leikvangnum í Osló í dag og stilltu Norðmenn upp sterku byrjunarliði þó Erling Braut Haaland hafi verið fjarri góðu gamni.

Benjamin Kallman kom Finnum yfir eftir hálftíma leik en Alexander Sorloth jafnaði metin fyrir Norðmenn áður en yfir lauk.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli




Fleiri fréttir

Sjá meira


×