Belgar úr leik eftir klúður Lukaku Sindri Sverrisson skrifar 1. desember 2022 16:52 Romelu Lukaku fékk tvö sannkölluð dauðafæri til að skora en nýtti þau ekki. Getty/Ian MacNicol Króatía, silfurlið síðasta HM, komst í dag áfram í 16-liða úrslit HM í fótbolta í Katar en sendi um leið Belga heim. Belgar fengu dauðafæri til að komast yfir í seinni hálfleiknum. Belgía átti þó sinn besta leik á mótinu í dag og Kevin de Bruyne sýndi snilli sína í að opna króatísku vörnina en það dugði ekki til og niðurstaðan varð markalaust jafntefli. Marokkó tryggði sér sigur í F-riðlinum með því að vinna Kanada en Króatía endaði í 2. sæti og mætir því sigurliðinu úr E-riðli í 16-liða úrslitunum. Spánn er í efsta sæti þess riðils sem stendur. Romelu Lukaku kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik gegn Króötum og komst næst því að skora. Hann fékk til að mynda tvö sannkölluð dauðafæri. Það fyrra kom eftir klukkutíma leik þegar hann fylgdi á eftir skoti Yannick Carrasco en þrumaði í stöng og út. Seinna færið var jafnvel enn betra þegar fyrirgjöf frá hægri fór yfir markvörð og vörn Króatíu, á Lukaku einan á fjærstöng, en hann fékk boltann í brjóstkassann og tókst einhvern veginn ekki að stýra honum í autt markið. Um gríðarleg vonbrigði er að ræða fyrir Belga, sem sitja í 2. sæti heimslista FIFA, og Króatar svekkja sig sjálfsagt eitthvað á að hafa misst toppsæti riðilsins til Marokkó ef það þýðir að þeir þurfi að mæta Spánverjum. HM 2022 í Katar
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“