Viðskipti innlent

Ís­lands­banki hækkar vexti

Atli Ísleifsson skrifar
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Íslandsbanki hefur ákveðið að hækka vexti frá og með mánudeginum 19. desember næstkomandi. Breytingarnar tala gildi í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 23. nóvember þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig, úr 5,75 prósent í sex prósent.

Á vef bankans kemur fram að rétt sé að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt hafi verið á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, séu ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak.

Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig. Almennir veltureikningar haldast óbreyttir.
  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,25 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig.
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig.

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.

Breytingar á óverðtryggðum breytilegum vöxtum húsnæðislána taka gildi þann 1. janúar næstkomandi, segir á vef bankans.


Tengdar fréttir

Lands­bankinn hækkar vexti

Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×