Skoðun

Ó­rök­studd að­för að bláum Capri

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir innleiðingarfrumvarpi frá ESB sem mun banna Salem og Capri bláan ásamt öðrum mentol sígarettum. Tilgangurinn er að hlífa börnum, sem væri gott og blessað og sjálfsagt ef hægt væri að færa rök fyrir að mentol sígarettur hefðu einhvern tímann gert börnum eitthvað umfram aðrar sígarettutegundir. En svo er einfaldlega ekki.

Rökstuðninginn vantar

Í frumvarpinu er rökstuðningurinn vægast sagt rýr. Þar er eingöngu vísað til þess að líkur séu á að tóbaksneysla hefjist ef tóbaksvörur hafi „einkennandi“ bragð. Hvorki í frumvarpinu né í tilskipun þeirri sem frumvarpið byggir á er að finna rökstuðning fyrir því að mentol bragð í tóbaki sé slíkt einkennandi bragð sem setji meiri hvata til reykinga en ella. Ekki er gerð tilraun til frekari rökstuðnings að öðru leyti en að tekið er fram að WHO hvetji til þess að innihaldsefni sem auka bragðgæði séu fjarlægð. Sama er uppi á teningnum með að ekkert er vikið að rökstuðningi um einhvers konar sönnur á því að mentol auki bragðgæði í þeim skilningi sem þar um ræðir.

Ómálefnalegt ójafnræði

Fyrir utan að upplýst umræða og forvarnir eru alltaf betri en boð og bönn að þá skiptir máli að hafa í huga að með frumvarpinu er ekki verið að stoppa af jarðaberja- eða súkkulaðisígarettur í stórum stíl. Það er verið að banna mentol sem enginn hefur sýnt fram á að hugnist ungmennum meir eða sé óumdeilt bragðbetra. Hins vegar er það fjórðungur fullorðins reykingafólks, djammreykingafólk og þær sem fara út á svalir í saumaklúbbnum sem kunna vel við sínar mentol sígó. Nú á að taka það frá þeim.

Þetta er freklegt ójafnræði á milli fólks um að velja á milli tegunda á löglegri neysluvöru sem að mínu viti fær ekki staðist með svo litlum rökstuðningi. Lýðheilsa skiptir auðvitað máli en hér er ekki verið að banna tóbak eða eitthvað slíkt. Þetta er frekar eins og fyrir lægi að ekki ætti að banna sykurlausa drykki, en að ákveðið yrði að allir sem kjósa Pepsi max lime þyrftu án nokkurs haldbærs rökstuðnings framvegis að sætta sig við Pepsi max.

Engin lögfræðileg stoð fyrir banni

EES-samningurinn er mikilvægasta viðskiptasamningssamband sem við Íslendingar eigum. En stundum er það svo að þær innleiðingar sem okkur er boðið upp á hér eru bara helber vitleysa eins og þetta mentolbragðsbann ber vitni um. Það er því miður að því er virðist einhvers konar misskilningur eða sýndar lýðheilsuaðgerð sem er algerlega órökstudd. Það er einfaldlega engin rökrétt né lögfræðileg stoð fyrir því banni sem frumvarpið felur i sér.

Mentolbann verði fellt út

Því lagði ég til í ræðu minni við framsögu ráðherra á málinu að velferðarnefnd hafni forsendum frumvarpsins vegna rökleysis og breyti frumvarpinu á þann hátt að mentol bragðið verði fellt þar út. Ég trúi því að ESA muni ekki geta annað en fallist á það, en ef ekki er vel þess virði að ESA þusi smá, ef fyrir það fæst að saumaklúbbar landsins geta áfram fengið sínar mentol í friði.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×