Handbolti

Svekkjandi tap Gum­mers­bach | Ýmir Örn hafði betur gegn Sveini

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hákon Daði skoraði tvö mörk í kvöld.
Hákon Daði skoraði tvö mörk í kvöld. Getty Images

Íslendingalið Gummersbach mátti þola tap með minnsta mun gegn Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ýmir Örn Gíslason og félagar í Rhein Neckar Löwen unnu stórsigur á Minden. Sveinn Jóhannsson leikur með Minden.

Tap Gummersbach var einkar súrt en sigurmarkið kom þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka, lokatölur 28-29. Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar í liði Gummersbach. Hákon Daði Styrmisson skoraði einnig tvö mörk.

Guðjón Valur Sigurðsson er sem fyrr þjálfari liðsins sem situr í 9. sæti 18 stig

Ýmir Örn skoraði tvö mörk fyrir Löwen sem vann ellefu marka útisigur, lokatölur í Minden 29-40. Sveinn skoraði eitt mark í liði heimamanna.

Með sigrinum jafnaði Löwen topplið Füchse Berlin að stigum, bæði með 31 stig. Berlínarliðið á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×