Innlent

Al­gjör firra að það sé lítils­virðing að vara við hættunni af of­fitu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kári segir of feitan einstakling á aldrinum 35 til 40 ára í svipaðri áhættu og manneskja á hans aldri þegar kemur að ýmsum sjúkdómum á borð við hjartabilun og krabbamein.
Kári segir of feitan einstakling á aldrinum 35 til 40 ára í svipaðri áhættu og manneskja á hans aldri þegar kemur að ýmsum sjúkdómum á borð við hjartabilun og krabbamein. Vísir/Vilhelm

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að jafnvel þótt lyf sem notuð eru við offitu séu dýr muni þau koma til með að stuðla að sparnaði í heilbrigðiskerfinu. Hann fagnar nýjum lyfjum við offitu, sem sérfræðingar séu sammála um að sé mesta heilbrigðisvandamál samtímans.

Frá þessu greinir Fréttablaðið en tilefnið eru ummæli næringarfræðingsins Vilborgar Kolbrúnar Vilmundardóttir, sem jafnframt situr í stjórn Samtaka um líkamsvirðingu, um að skilgreiningin á offitu sem sjúkdómi byggði ekki á vísindalegum grunni.

„Of­fitu fylgir gífur­lega aukin hætta á hjarta­bilun, lifrar­skemmdum, sykur­sýki full­orðinna, kæfis­vefni, slit­gigt hjá ungu fólki og alls­konar krabba­meinum. Það sem meira er að það er bók­staf­lega línu­legt sam­band milli of­fitunnar og þeirra mæli­kvarða sem eru notaðir á of­fitu og hættunnar af þessum sjúk­dómum. Þannig það fylgir þessu gífur­leg á­hætta,“ segir Kári í samtali við Fréttablaðið.

Hann segir lyfin hjálpa fólki að léttast og með þyngdartapinu dragi úr áhættunni á fyrrnefndum sjúkdómum.

Kári segir lyfin sem Vilborg sé að „henda skít í“ séu íhaldssamari leið en hjáveituaðgerðir og þá sé algjör firra að halda því fram að það sé verið að sýna fólki lítilsvirðingu með því að vara við hættum af völdum offitu.

Notkun lyfja á borð við Ozempic og Saxenda hefur tífaldast á síðustu árum en Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka um líkamsvirðingu, er meðal þeirra sem hafa talað gegn notkun þeirra. Hún sagði á dögunum frá því að hafa verið beitt þrýstingi af heimilislækni að fara á lyf.

Kári segir lækninn hins vegar einfaldlega hafa verið að sinna skyldu sinni.

Þegar læknir sér ein­stak­ling sem er í á­hættu af al­var­legum sjúk­dómi þá er skylda hans að reyna að koma í veg fyrir að á­hættan af sjúk­dómnum verði sjúk­dómur, þannig að hann var bara að vinna vinnuna sína,“ segir hann. 

Kári segist sjálfur hafa megnustu fyrirlitningu á þeim sem vanvirða fólk fyrir það eitt að vera of feitt; það sé eins og að vanvirða einhvern fyrir að vera með of háan blóðþrýsting. Offita sé hins vegar ein mesta ógnin við heilsufar Íslendinga og annarra þjóða á Vesturlöndum.

„Á sama máta þá má ekki standa hjá og láta eins og ekkert hafi í skorist þegar sam­fé­lagið er allt að verða of­feitt. Við getum ekki staðið hjá og horft á það að fólk sé að vega að heilsu sinni ljóst og leynt og linnu­laust með því að þyngjast svona mikið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×