Þægilegt hjá Liverpool gegn Newcastle Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. febrúar 2023 19:25 Gaman saman. EPA-EFE/Peter Powell Liverpool vann 2-0 útisigur á Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Leikurinn gat vart byrjað betur fyrir gestina frá Bítlaborginni en eftir tíu mínútna leik hafði Darwin Núñez komið boltanum í netið eftir sendingu Trent Alexander-Arnold. Aðeins sjö mínútum síðar tvöfaldaði Cody Gakpo. Að þessu sinni var það Mohamed Salah sem lagði markið upp. Á 22. mínútu leiksins má svo segja að sigur Liverpool hafi endanlega verið gulltryggður. Alisson spyrnti þá fljótt frá marki sínu og Nick Pope, markvörður Newcastle, sá engan annan kost í stöðunni en að koma úr vítateig sínum til að stöðva sendingu kollega síns. Pope reyndi að skalla boltann með þeim afleiðingum að hann datt hálfpartinn ofan á hann og tók hann með höndum, fyrir utan vítateig. Slíkt er bannað og var Pope rekinn af velli. Nick Pope pic.twitter.com/bRr7KZiA7y— Football Daily (@footballdaily) February 18, 2023 Segja má að við það hafi leiknum hafi í raun verið lokið en hvorugt lið bætti við marki það sem eftir lifði fyrri hálfleiks né í þeim síðari. Lokatölur í Norður-Englandi því 0-2 og Liverpool fer heim með stigin þrjú. Um var að ræða fyrsta tap Newcastle á heimavelli á leiktíðinni. Sigurinn lyftir Liverpool upp í 8. sæti með 35 stig á meðan Newcastle er í 4. sæti með 41 stig. Enski boltinn Fótbolti
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti