Enn bætist einn steinn í vörðuna hvað varðar leyndina um Lindarhvol. Jóhann Páll hefur hins vegar með vísan til þingskaparlaga náð að knýja fram atkvæðagreiðslu í þingsal um hvort fyrirspurnin skuli leyfð. Birgir staðfest að sú atkvæðagreiðsla fari fram.
Spurður um á hvaða forsendum Birgir hafi hafnað fyrirspurninni segir Jóhann Páll í samtali við Vísi forseta Alþingis bera því við að honum finnist hún ekki fjalla um „stjórnsýslu Alþingis“ heldur málefni Ríkisendurskoðunar.
Hin forboðna fyrirspurn
„Mitt svar við því er að þetta er ekki lengur vinnuplagg Ríkisendurskoðunar eftir að Alþingi fékk það afhent, og þetta er augljóslega andlag stjórnsýslumáls á Alþingi vegna ákvarðana sem hafa verið teknar um hvort skuli birta greinargerðina eða ekki.“
Fyrirspurn Jóhanns Páls til forseta Alþingis er svohljóðandi:
1. Hvað kemur fram í greinargerð setts ríkisendurskoðanda um að starfsemi Lindarhvols ehf. frá 2018?
2. Hvaða atriði taldi settur ríkisendurskoðandi að gæfi tilefni til frekari upplýsingaöflunar og mats á því hvort rétt hefði verið staðið að málum?
3. Hvaða athugasemdir gerði settur ríkisendurskoðandi við söluferli hlutar ríkisins í félaginu Klakka ehf.?
4. 5. Hvað taldi settur ríkisendurskoðandi gefa til kynja að hlutur ríkisins í Klakka hefði verið seldur á undirverði.
„Þetta er óþolandi“
Nokkur umræða varð um málið á þingi nú rétt í þessu um þetta atriði og ítrekaði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrirspurn sína um fylgigagn forsætisnefndar í bréfi til stjórnar Lindarhvols, álitsgerð lögfræðistofunnar Magna um hvort löglegt væri að leggja greinargerð Sigurðar Þórðarsonar setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol, yrði lögð fram. Ekki verður annað af ráðið af gögnum sem Vísir hefur undir höndum en að Magni telji það standast lög að greinargerðin sé fram lögð. Stjórn Lindarhvols hefur hins vegar lagst alfarið gegn því að greinargerðin verði birt.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata tók jafnframt til máls og tók undir orð Jóhanns Páls og Þórhildar Sunnu. Halldóra Mogensen þingmaður Pírata sagði með ólíkindum hversu mikið Birgir legði á sig, með ótrúlegum lögfræðilegum klækjum, til að birta greinargerðina ekki. „Birtum þetta bara. Ég krefst þess að forseti finni leiðir til þess. Þetta er óþolandi.“
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata bætti um betur og kallaði þetta „lögfræðilega loftfimleika“ Birgis.