Fótbolti

Mbappé marka­hæstur í sögu PSG

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markahrókurinn Kylian Mbappé.
Markahrókurinn Kylian Mbappé. Antonio Borga/Getty Images

Franska stórstjarnan Kylian Mbappé varð í gærkvöld, laugardag, markahæsti leikmaður í sögu franska knattspyrnuliðsins París Saint-Germain. Hann hefur nú skorað 201 mark í aðeins 247 leikjum fyrir félagið.

Áður en leikur PSG og Nantes í frönsku úrvalsdeildinni hófst í gærkvöld var Mbappé jafn Edinson Cavani á listanum yfir markahæstu leikmenn í sögu PSG. Báðir höfðu þá skorað 200 mörk en það hafði tekið Mbappé töluvert styttri tíma til að ná þeim fjölda marka. Í þriðja sæti listans er svo Svíinn sjálfumglaði Zlatan Ibrahimović með 156 mörk fyrir félagið.

Mbappé var í gær að spila sinn 247. leik í öllum keppnum fyrir PSG en hann gekk í raðir félagsins árið 2017. Það stefndi í að Mbappé og Cavani yrðu áfram jafnir sem markahæstu menn í sögu félagsins en Mbappé komst ekki á blað gegn Nantes fyrr en ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma.

Gulltryggði hann 4-2 sigurinn og hafði því ærna ástæðu til að fagna eftir að boltinn söng í netinu. Ekki nóg með að skora 201 mark í 247 leikjum heldur hefur Mbappé einnig gefið 96 stoðsendingar. Hann heftur því komið að 1.2 mörkum að meðaltali í leik síðan hann byrjaði að spila fyrir Parísarliðið.

Framtíð hins 24 ára gamla Mbappé hefur verið til umræðu en þó samningur hans gildi til sumarsins 2025 er talið að Real Madríd geri aðra tilraun til að fá leikmanninn í sínar raðir í sumar. Hvort hann fari einhvern tímann frá París og hversu mörg mörk hann verður búinn að skora eða leggja upp í treyju PSG verður einfaldlega að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×