Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir af því hvernig þessi kafli Reykjanesbrautar mun líta út eftir breikkun en hann er sá síðasti sem eftir er að tvöfalda milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur.

Það átti reyndar að bjóða út þennan 5,6 kílómetra langa kafla í fyrra en þá fékk Vegagerðin ekki fjármagn. Einnig hefur verkið stækkað síðan þá, að sögn verkefnisstjórans Jóns Heiðars Gestssonar.

„Við fengum allavega fé í þetta núna enda gríðarleg pressa á þessu verkefni út af ýmsu, öryggismálum, og hérna er alþjóðaflugvöllur.
Og við vitum nú hvernig síðasti vetur var. Það var ýmislegt í gangi þar varðandi stopp á Reykjanesbrautinni, sem hefði kannski verið hægt að koma í veg fyrir hefði þetta verið búið,“ segir Jón Heiðar.

Og það var annað stórverk auglýst hjá Vegagerðinni, ný Ölfusárbrú.
„Það er forval. Þannig að það er ekki búið að velja verktaka í því útboði. En þetta eru allavega þau tvö verkefni sem eru núna auglýst,“ segir Jón Heiðar.

Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel til að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar. Sömuleiðis verða mislægu gatnamótin við Straumsvík stækkuð og bætt við tengingu að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu en tilboð verða opnuð 4. apríl.

„Við munum í framhaldinu fara yfir tilboðin og semja. Þannig að verktaki ætti að geta hafið verkið á framkvæmdastað svona í maí,“ segir verkefnisstjórinn.
Þegar til stóð í fyrra að bjóða verkið út var miðað við verklok sumarið 2025. Núna er orðin ársseinkun. Það á ekki að ljúka verkinu fyrr en sumarið 2026, eftir rúm þrjú ár. Vegfarendur munu þó njóta vegbótanna að hluta eitthvað fyrr.

„Við reynum að opna megnið af Reykjanesbrautinni árið 2025. En svo er síðasti kaflinn þarna, svona hálfur kílómetri í kringum Straumsvík, hann verður opnaður 30. júní 2026,“ segir Jón Heiðar Gestsson, verkefnisstjóri Reykjanesbrautar hjá Vegagerðinni.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hér má sjá myndband Vegagerðarinnar af breikkun Reykjanesbrautar: