Menning

Gísli Örn út­nefndur bæjar­lista­maður Sel­tjarnar­ness

Árni Sæberg skrifar
Gísli Örn Garðarson er bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2023.
Gísli Örn Garðarson er bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2023. Kristín Arnþórsdóttir

Gísli Örn Garðarson, leikari og leikstjóri, var útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2023 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness í gær.

Menningarnefnd Seltjarnarness sér um val bæjarlistamanns ár hvert en afhendingin í gær var sú tuttugasta og sjöunda í röðinni, að því er segir í fréttatilkynningu um útnefninguna.

Í heiðursathöfninni veitti Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar Gísla Erni viðurkenningingarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð einni milljón króna, sem fylgir nafnbótinni.

Þórdís Sigurðardóttir, formaður menningarnefndar Seltjarnarness, Gísli Örn Garðarsson og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.Kristín Arnþórsdóttir

Gísla Örn þarf vart að kynna fyrir mörgum enda hefur hann um árabil verið einn dáðasti leikari þjóðarinnar auk þess að hafa leikstýrt, skrifað og framleitt sjónvarpsþáttum og kvikmyndum við góðan orðstýr.

Þá hefur hann sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis.

„Gísla Erni eru færðar innilegar hamingjuóskir með heiðursnafnbótina, Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 og munu Seltirningar að sjálfsögðu fá að njóta hæfileika hans á árinu,“ segir í fréttatilkynningu.

Gísli Örn hefur búið á Seltjarnarnesi frá árinu 2014 ásamt eiginkonu sinni, Nínu Dögg Filippusdóttur leikkonu og börnum þeirra tveimur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.