Innlent

Lóga hátt í sjö hundruð kindum vegna riðu í Mið­firði

Kjartan Kjartansson skrifar
Riðuveiki er langvinn og ólæknandi. Talið er að prótín sem veldur veikinni geti lifað í áratug í umhverfinu og valdið endurteknum smitum. Myndin er úr safn og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hættii.
Riðuveiki er langvinn og ólæknandi. Talið er að prótín sem veldur veikinni geti lifað í áratug í umhverfinu og valdið endurteknum smitum. Myndin er úr safn og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hættii. Vísir/Vilhelm

Hátt í sjö hundruð kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi eftir að riða greindist þar. Þetta er í fyrsta skipti sem riða greinist á sóttvarnasvæðinu sem nefnist Miðfjarðarhólf.

Matvælastofnun segir að bændurnir á Bergsstöðum hafi haft samband í síðustu viku og tilkynnt um veikar kindur með einkenni sem pössuðu við riðu. Starfsmenn stofnunarinnar tóku þá sýni og staðfesti tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum að riða væri í fénu.

Nú er unnið sé að undirbúningi aðgerða en Matvælastofnun vill að 690 kindum á bænum verði lógað sem fyrst í ljósi þess að mest smithætta sé við sauðburð.

Bergsstaðir eru í sóttvarnasvæðinu Miðfjarðarhólfi en það hefur fram að þessu talist ósýkt svæði samkvæmt reglugerð um útrýmingu á riðuveiki. Nú verður svæðið skilgreint sem sýkt. Það hefur í för með sér að óheimilt verður að flytja sauðfé til lífs milli hjarða í hólfinu og hvaðeina annað sem getur borið smitefni á milli staða eins og hey, heyköggla, hálm, húsdýraáburð, túnþökur og gróðurmold. Þá verður óheimilt að hýsa aðkomufé, fóðra það eða brynna því með heimafé.

Riðuveiki er langvinnur og ólæknandi smitsjúkdómur í sauðfé, að því er segir í grein á vef Matvælastofnunar. Hún veldu hrörnunarskemmdum í heila og mænu dýranna. Smitefnið er hvorki baktería né veira heldur aflagað prótín. Veikin leiðir kind stundum til dauða á fáum vikum eða skemur. Smitefnið er talið geta lifað í umhverfi í meira en áratug og komið upp á sama bæ oftar en einu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×